föstudagur, desember 08, 2006

Hvert eigum við að fljúga næst??

Halló Matti minn,

Ég man þegar að ég sá þig í fyrsta skiptið heima hjá mömmu þinni og án þess að sjá mig hljópstu til mín og stökkst upp í fangið á mér. Kom reyndar síðan í ljós að þú hélst að ég væri barnapían, því að hún heitir Ingibjörg eins og ég:-) En engu að síður þá er alltaf voða gaman hjá okkur, þú nærð alltaf að draga mig inn í herbergið þitt þar sem að við förum að leika okkur í flugvél:-) Ég veit ekki hvert við höfum ekki flogið, að vísu alltaf smá hamfarir á leiðinni en við lendum alltaf heilu á höldnu á áfangastað. Núna ertu í Reykjavík þannig að ég get ekki kysst þig gleðileg jól en við sjáumst á nýju ári hress og spræk á Akureyri:-)

Kiss og knús
Ingibjörg

2 ummæli:

Helga D. Möller Magnúsdóttir sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Helga D. Möller Magnúsdóttir sagði...

Við flugum næst til suður Afríku...þegar þú og mamma verða 30 ára. Held reyndar að þá á bara að vera stelpuferð...en hver veit nema að ég fái að fara með...hehe
Knús MogH