mánudagur, febrúar 20, 2006

Gullkorn

Pabbi var að reyna að klæða mig í skóna mína í morgun og ég var ekki að horfa á, með þeim afleiðingum að ég datt á bossan.
Matti: pabbi þú varst ekki að passa mig!
pabbi: þú varst heldur ekki að horfa á!
(smá þögn)
Matti: pabbi þú hugsar líka bara um sjálfan þig!

Ég lét hann pabba heyra það! Til hamingju með daginn Mamma......

fimmtudagur, febrúar 09, 2006

Hótanir!

Matti: má ég fá eitt nammi?
Mamma: nei ástin mín það er ekki laugardagur.
Matti: en mamma stelpan í búðinni fékk nammi í gær (í gær getur þýtt fyrir langa löngu).
Mamma: Ég ræð ekki hvað hún fær en ég ræð hvenær þú færð nammi og það er bara á laugardögum.

SMÁ ÞÖGN! EN SVO......

Matti: Elsku besta fallegasta mamma í heimi má ég bara fá eitt nammi svo skal ég ekki fá meira, bara eitt. GERÐU ÞAÐ!
Mamma: NEI
Matti: Mamma ef þú gefur mér ekki nammi þá færðu ekki að koma í afmælið mitt!

Skóli!

Matti: Mamma þegar ég byrja í skóla eins og Damien frændi fer ég skóla með honum í AFRIKU?
Mamma: Held ekki ástin mín, þar sem hann er svo langt í burtu að við þyrftum að flytja til AFRIKU.
Matti: Það er allt í lagi
Mamma: En hvað með pabba?
Matti: Hann kemur bara með
Mamma: En ef það er ekki hægt
Matti: Það er allt hægt ef ég segi það!!!!
Mamma: En Egill bróður þinn ætlar í skóla á Íslandi vilt þú ekki fara í skóla á Íslandi eins og hann?
Matti: NEI nei hann kemur bara með mér líka!

Sem sagt ég hef svör við öllu!

sunnudagur, febrúar 05, 2006

Erfiður tími!

Ég er eitthvað ekki sáttur þessa dagana, svolítið lítill í mér en mamma heldur bara að það sé eftir ferðalagið til Afriku. Sakna mikið bróðir míns og skil það bara ekki að hann skuli ekki bara koma heim núna til Íslands. En því miður þá verð ég bara að bíða þar til í sumar!

En það er nú samt smá gaman leikskólanum, búin að eignast "KÆRUSTU" (mömmu finnst það nú heldur snemma en hvað getur hún sagt!!). Hún Gréta Björg sem er kærasta mín var mjög góð við mig í vikunni hún hafði klippt út mynd af móður minn sem var í fréttablaðinu(enn ein VISA auglýsingin) og sagði svo við móður sína að hún ætlaði að gefa Marteini kærasta sínum myndina. Mömmu Grétu fannst þetta svo sætt að hún fór með myndina til pabba míns og sagði honum þessa yndislegu ástarsögu!!!...EN SÆTT!

Var hjá pabba mínum um helgina. Við fórum út að hjóla, við hjóluðum heila 3 km. Ég er alveg rosaleg duglegur þegar ég vil það. Einnig fórum við í Sunnudagskólan og það var mjög gaman. Ég gerði mikla lukku, þar sem ég hefði fengið að taka gítarinn minn með í sunnudagskólan fékk ég að spila með einum öðrum strák allan tíman.......ÉG SEM SAGT SLÓG Í GENG HJÁ ÖLLLUM MÖMMUM OG PÖBBUM..THÍ THÍ

Svo kom ég heim til mömmu seinni partinn þar sem við vorum að fara í skírn. Það var vera að skíra litla bróðir hans Alexsander. Það var alveg rosaleg gaman...skildi reyndar ekki alveg hvers vegna að Séra Pálmi skildi vera í hvítum kjól og sagði bara við hann að væri nú eitthvað skrítinn því bara stelpur eru í svoleiðis!!!

Jæja núna ligg ég stein sofandi upp í rúmi eftir að hafa verið að ræða við hana móður mína að mig langiði í lítið barn svo ég gæti haldið á undir skírn eins og Alexander fékk að gera....en hún móðir mín var ekki alveg að samþykkja það sem ég reyndar skil ekki .....ONE DAY!

Heyrðumst bráðlega...knús og kossar til allra...

fimmtudagur, febrúar 02, 2006

Komin heim!!

Jæja við mamma erum komin heim og allt gekk vel. Held reyndar að hún móðir mín myndi vilja vera lengur úti en eins og hún orðaði það það: alltaf gott að koma heim til Ísland!

Ég reyndar ekki alveg sáttu við að afi Maggi komi ekki heim strax en er reyndar að skilja það að hún móðir mín skuli vilja smá pásu. Þetta ferðalag okkar mömmu var alveg yndislegt. Fengum mikla sól og slökuðum mikið á.

Dagarnir heima hafa verið svolítið erfiðir en það kemur allt. Sakna svolítið afa og Damien. Sem sagt Damien er minn besti vinur. Við eigum mikið sameiginlegt þar að meðal mjög erfiðar mömmmur...hahahaha.

Ég verð reyndar að viðurkenna það að ég sakna bróður míns mjög mikið. Var ekki alveg að skilja það að Þorbergur og Damien fengu að vera saman en ég fékk ekki að hitta bróðir minn Egill Orra. En vonandi í sumar breytist það.

Ég er ekki búin að vera 4 daga í leikskólanum og viti menn ég er komin með kæristu!! (snemma byrjar það!!!). Þessa dagana snýst allt um hana! Hún var mjög stolt af sjálfum sér þar sem hún hafði klippt auglýsingu af mömmu minni úr Fréttablaðinu og sagt við móður sína: ég ætla að gefa Marteini þetta! En þegar ég kom heim eftir leikskóla þá var ég búin að týna auglýsingunni og var ekki sáttur...... en hún móðir mín reddaði þessu með að klippa sömu auglýsingu út og láta mig fá hana. ( fá hvað ég er stoltur sonur!!).

Þessa dagana er bókin "Kossin sem hvarf" mín uppáhalds bók. Eins og titillinn segir frá er hún um koss sem hvarf en fannst svo. Held reynar að hún móðir mín lifi sig meira í henni en ég....en hvað með það okkur finnst hún skemmtileg.

Jæja gott fólk ég ligg núna upp í rúmi stein sofandi og læt mig dreyma um allt það góða....VONANDI....

KOSS OG KNÚS MATTI.

P.S TANJA ÉG ELSKA ÞIG....GODDD NIGT....SEE YA 2 MORRRRO.!