sunnudagur, ágúst 20, 2006

Sól og sumar fyrir Norðan

Það er búið að vera yndislegt veður hérna fyrir norðan. Á föstudaginn sótti mamma mig á leikskólan og þegar hún mætti þá var ég bara í miðjum vatnslag með öllum á leikskólanum, rosa fjör. Þegar við komum heim var Raggi, Elvar Goði, Anna Mary og Ingrid að bíða eftir mér til að taka mig í Mývatnsveit. Svo kom mamma um kvöldið þegar hún var búin á námskeiðinu sínu!
Við erum búin að eyða allri helginni á Mývatni í rosalegum hita og með góðum félagskap.
Fórum í smá ferðalag á laugardaginn hér eru myndir:

Engin ummæli: