Það er svo gott að vera byrjaður aftur í leikskólanum og komin aftur í rútinu mína. En ég verð bara í viku í leikskólanum og í þessari rútinu sem allir tala um (mamma aðalalega hehe) þá fer ég aftur í frí....sem er nú reyndar ekki slæmt í þetta sinn.
Sko fyrst kemur amma Oddný og afi Úlli til okkar á morgun svo á sunnudaginn þá kemur Sonja frænka alla leið frá Afriku og verður hjá okkur þar til að við förum öll suður líklegast á þriðjudaginn..OG ÞÁ BYRJAR BALLIÐ ..... MAMMA HELDUR REYNDAR AÐ ÉG SÉ EKKI ALVEG AÐ GERA MÉR GREIN FYRIR HVAÐ ER AÐ GERAST ....EÐA JÚ ÉG VEIT AÐ ÉG Á AÐ FARA Í JAKKA FÖT OG VERA MEÐ BINDI EINS OG AFI EN AÐ MAMMA SKULI VERA GIFTA SIG....ÞAÐ ER EITTHVAÐ SKRÍTIÐ. EN ÞETTA KEMUR ALLT Í LJÓS.
Ég reyndar sagði við Heiðu leikskólakennara að ég myndi nú ekki sjá hana í næstu viku þar sem ég væri svo upptekin við að passa hana mömmu mína að hún myndi nú mæta á réttum tíma í kirkjuna!! Þannig að hann er eitthvað að spá í þessu...EN HVAÐ MUN AÐ GERA AF SÉR!!!(HUGSAR MAMMA MEÐ BROS Á VÖR)......
Jæja heyrumst um helgina...þegar amma, afi og Sonja frænka er komin....
ps. Vildi láta ykkur vita að afi Maggi er allur að hressast. Þið sem þekkið hann þið vitið hversu þrjóskur hann er að hann mun aldrei gefast upp...hehe
2 ummæli:
hæ helga mín.
vá hvað ég hlakka til að sjá myndir af þér í brúðarkjólnum :) þú verður án efa mjöööööööög flott og fín.
og spennó að sjá hvernig matti mun standa sig ;)
hafið það sem allra best og ég bið að heisla sonju og pabba þínum. gott að hann sé að taka þetta á þrjóskunni.
knús,
anna.
Hæ sæta, hlakka svoooooo til að sjá ykkur í næstu viku. Hafið það sem allra best þangað til kiss kiss og knús þín vinkona Hanna María P.s bið að heilsa pabba þínum og co.
Skrifa ummæli